Prenthaus

Bólusetningar á Norðurlandi í næstu viku

Bólusetningar á Norðurlandi í næstu viku

Í næstu viku verður þeim sem fengu Janssen bóluefni á Norðurlandi boðinn örvunarskammtur með Pfizer bóluefni. Ekki er mælt með að þeir sem eru með sögu um Covid -19 fái örvunarskammt í bili.

Í tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands segir að að minnsta kosti 28 dagar þurfa að hafa liðið frá Janssen bólusetningunni til að geta mætt í örvunarskammt þó mælst sé til að bilið sé átta vikur. Allir munu fá boð í þessari eða næstu viku en geta einnig valið að koma á næstu vikum.

Þeir sem ekki hafa hafið bólusetningu eða eiga eftir að fá seinni skammt af Pfizer bóluefni eru einnig velkomnir á auglýstum tímum hér fyrir neðan.

Bólusett verður fyrir Norðurland á eftirtöldum stöðum:

  • Fyrir Blönduós og Sauðárkrók

Í Fjölbrautarskólanum á Sauðárkróki miðvikudaginn 11. ágúst kl: 15 -19.

  • Fyrir Akureyri, Dalvík og Fjallabyggð

Á Slökkvistöðinni á Akureyri fimmtudaginn 12. ágúst kl: 10-17.

  • Fyrir Húsavík, Þórshöfn, Kópasker, Raufarhöfn, Reykjahlíð og Laugar                             

 Í Íþróttahöllinni á Húsavík miðvikudaginn 11. ágúst kl: 16-18:30.

Fleiri bólusetningardagar fyrir örvunarskammt verða á næstu vikum. Tíma- og staðsetningar verða auglýstar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó