Bólusetningar á Norðurlandi í vikunni

Bólusetningar á Norðurlandi í vikunni

Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær 3000 skammta af bóluefni á morgun, 4. maí. Haldið verður áfram að bólusetja niður árganga með Astra Zeneca bóluefninu en næstu árgangar eru 1962-1966.

„Við náum aðeins að bólusetja hluta þess hóps í þessari viku, getur verið aðeins breytilegt eftir stöðum en jafnast út í næstu og þarnæstu viku,“ segir í tilkynningu.

Pfizer bóluefnið verður nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu bóluefni 13.-16 apríl og fyrri bólusetningu hjá þeim sem hafa undirliggjandi sjúkdóma og mega bara fá Pfizer.

„Einnig höfum við fengið sendingu með bóluefni frá Janssen og verður það notað fyrir fólk eldri en 18 ára og verður það gefið eins og önnur bóluefni í næstu forgangshópa og samkvæmt tilmælum sóttvarnarlæknis,“ segir í tilkynningu.

Á Akureyri fer seinni bólusetning þeirra sem fengu fyrri bólusetninguna með Pfizer bóluefninu 8. -13 apríl fram þriðjudaginn 4. maí. Þeir sem hafa ekki farsíma og fá því ekki boð með sms eru beðnir um að mæta í seinni bólusetninguna á slökkvistöðina 4. maí milli kl. 12-15. Einnig fær hópur fólks með undirliggjandi sjúkdóma sína fyrri bólusetninguna 4. maí.

Á Akureyri fer bólusetning þeirra sem ekki hafa hafið bólusetningu og er fætt í árgöngum 1966 og fyrr fram fimmtudaginn 6. maí. Allir sem er fæddir 1966 og fyrr og hafa ekki hafið bólusetningu er velkomið á slökkvistöðina 6. maí milli kl. 09-12.

Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi mun fólk í þessum árgöngum og hópum fá boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram.

Sambíó

UMMÆLI