Bólusetningar á Norðurlandi – „Mikilvægt er að þeir sem ætla að nýta sér bólusetningar mæti í vikunni“

Bólusetningar á Norðurlandi – „Mikilvægt er að þeir sem ætla að nýta sér bólusetningar mæti í vikunni“

Á morgun, 22. júní eða í viku 25, fær Heilbrigðisstofnun Norðurlands rúmlega 6000 skammta af bóluefni. Pfizer bóluefnið verða m.a. nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu Pfizer bóluefni 1. júní – 4. Júní og fyrr. Astra Zeneca bóluefnið mun eingöngu verða notað fyrir seinni bólusetningu.

Nýir skammtar af Pfizer og Janssen bóluefninu verða notaðir til að klára alla árganga og þá sem ekki hafa komist í bólusetningu áður. 

„Mikilvægt er að þeir sem ætla að nýta sér bólusetningar mæti í vikunni. Framvegis verða fyrri bólusetningar ekki vikulega,“ segir í tilkynningu HSN.

„Við hvetjum fólk til að skrá símanúmer sín í heilsuveru, einnig passa upp á að yngra fólkið og útlendingar sem búa á svæðinu skrái símanúmer sín.“

Bólusetningar á Akureyri

Fara fram á Slökkvistöð Akureyrar.

Þriðjudaginn 22. júní er seinni bólusetning með Pfizer. Ekki er hægt að fá fyrri bólusetningu af Pfizer þennan dag. Einnig verður seinni bólusetning þeirra sem fengu Astra Zeneca 30. Mars – 7. apríl. Þeir einstaklingar verða í forgangi fyrir Astra Zeneca þennan dag. Ef þú vilt flýta seinni Astra Zeneca bóluetningu þinni, máttu koma í lok dags kl:15:00 og athuga hvort hægt sé að verða við því.

Miðvikudaginn 23. júní verður bólusett með Pfizer fyrri bólusetningu og eru allir velkomnir sem ekki hafa áður komist. SMS boð hafa verið send út. Bólusett er frá kl. 09:00 – 13:30.

Bólusetningar með Janssen verða ekki þessa viku en munu halda áfram í næstu viku og þá mun þeim sem hafa fengið Covid og eru 18 ára og eldri, standa til boða að fá bólusetningu.

Vinsamlegast fylgist með fréttum á HSN.is

Ath. nú má allur árgangur 2005 mæta. Foreldrar geta mætt með ef vilja.

Bólusetningar á öðrum starfstöðvum

  • Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi er búið að senda út boð á alla árganga eða þau á leiðinni í þessari viku.

UMMÆLI

Sambíó