Bólusetningar hjá HSN 26.-28. maí

Bólusetningar hjá HSN 26.-28. maí

Þann 26. maí eða í viku 21 fær Heilbrigðisstofnun Norðurlands um 2100 skammta af bóluefni. Pfizer bóluefnið, um 1700 skammtar, verður nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu Pfizer bóluefni 4.-7. maí og í seinni bólusetningu hjá þeim sem fengu Astra Zeneca bóluefni fyrir 12 vikum og eiga að fá Pfizer í seinni bólusetningu. Þá verður bóluefnið m.a. nýtt til að bólusetja leikskólakennara, kennara, starfsmenn félagsþjónustu og foreldra barna með lang­vinna sjúk­dóma.

Astra Zeneca bóluefni um 360 skammtar verða nýttir í að bólusetja seinni bólusetningu. Í lok næstu viku er gert ráð fyrir að allir forgangshópar verði langt komnir eða búnir.

Á Akureyri fer bólusetning með Pfizer bóluefninu fram miðvikudaginn 26. maí á Slökkvistöðinni og bólusetning með Astra Zeneca bóluefninu fer þar fram 27. maí. Fólk mun fá boð með sms skilaboðum.

Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi mun fólk í þessum hópum fá boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram.

UMMÆLI