Bólusetningar í vikunni – Síðustu forvöð fyrir sumarfrí að fá bólusetningu

Bólusetningar í vikunni – Síðustu forvöð fyrir sumarfrí að fá bólusetningu

Þann 29. júní eða í viku 26 fær HSN um 4000 skammta af bóluefni. Pfizer bóluefnið verða meðal annars nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu Pfizer bóluefni 9. júní og fyrr. Tekið verður hlé á fyrri bólusetningum með Pfizer fram í ágúst. Nokkrar undantekningar verða þó á því í næstu viku fyrir 18 ára og yngri.

Astra Zeneca bóluefnið mun eingöngu verða notað fyrir seinni bólusetningu og þá verðurJanssen bóluefni notað samkvæmt auglýstri opnun.

„Mikilvægt er að fólk mæti í sínar seinni bólusetningar þegar þær eru boðaðar. Við gerum ráð fyrir að seinni bólusetningar verði búnar um og eftir miðjan júlí og þá verður hlé á bólusetningum að jafnaði fram í miðjan ágúst. Bólusetningar verða þá með breyttu sniði og verður fyrirkomulagið og nánari dagsetning auglýst þegar nær dregur. Ath. Bólusetningar barna yngri en 16 ára eru ekki hafnar á Íslandi nema hjá börnum 12-15 ára í skilgreindum áhættuhópum,“ segir í tilkynningu HSN.

Upplýsingar af HSN.is:

Bólusetningar á Akureyri

Fara fram á Slökkvistöð Akureyrar.

Þriðjudaginn 29. júní verðum við með seinni Astra Zeneca bólusetningu fyrir þá sem fengu fyrri bólusetningu 29. apríl og fyrr. Ef fólk vill flýta bólusetningum eða er að koma einhversstaðar að getur það komið kl: 15:30 og athugað stöðuna hjá okkur. Bólusett verður frá kl: 12-16.

Miðvikudaginn 30. Júní verður seinni bólusetning þeirra sem fengu Pfizer bóluefni 9. júni og fyrr. Ekki er hægt að fá fyrri bólusetningu nema þú sért 16-18 ára (2003-2005) og/eða ert í skilgreindum áhættuhópi barna 12-15 ára. Þetta eru síðustu forvöð fyrir þennan hóp að hefja bólusetningu þar til í ágúst. Bólusett verður frá kl: 9-14. ATH að þeir sem eru á ferðalagi mega koma um kl: 13:30 og athuga hvort er laust í seinni skammt.

Fimmtudaginn 1. júlí verður opinn dagur með Janssen bóluefni frá kl: 9-11 og geta þeir sem eru 18 ára og eldri komið í bólusetningu. Ath. þetta eru síðustu forvöð fyrir sumarfrí að fá bólusetningu. Ráðleggjum við þeim sem vilja fá bólusetningu fyrir sumarfrí að koma þennan dag. Vaccination against Covid-19 with Janssen vaccine is available for those who are 18 years and older on Thursday 1. of July from 9-11 AM at Slökkvistöð Akureyrar in Akureyri.

Þeir sem eru búnir að fá Covid mega núna fá bólusetningu.  þeir sem eru fæddir 2003-2005 myndu þá koma í Pfizer á miðvikudag og þeir sem eru fædd 2002 eru velkomnir í Janssen á fimmtudag.

Bólusetningar á öðrum starfstöðvum

  • Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi eiga allir að hafa fengið boð í fyrri bólusetningu og boð í seinni bólusetningar verða send út eftir því sem við á. Vinsamlegast hafið samband við ykkar heilsugæslu til að fá nánari upplýsingar.

Vinsamlegast fylgist með fréttum á HSN.is.

Sambíó

UMMÆLI