Borgin mín – Martin, Slóvakíu

Borgin mín – Martin, Slóvakíu

Borgin mín er nýr liður á Kaffinu. Þar komum við til með að ræða um borgir víðsvegar í heiminum og Akureyringa sem eru eða voru búsettir þar. Með þessum lið vonumst við til þess að kynnast hinum ýmsu borgum enn betur og einstaklingunum sem þar búa. Hefur þig alltaf langað til að flytja erlendis en veist ekki hvert? Þá gæti borgað sig fyrir þig að fylgjast með þessum þræði.  Að þessu sinni fengum við Írisi Þengilsdóttur, 24 ára læknisfræðinema, til að kynna okkur fyrir borginni Martin í Slóvakíu.

 

iris

Íris Þengilsdóttir

– Hvers vegna býrð þú í borginni? Af hverju valdirðu hana frekar en aðrar?
Ég er að læra læknisfræði hérna úti. Það er í raun engin sérstök ástæða fyrir því að ég valdi Martin frekar en einhverja aðra borg. Ég frétti af því að frekar stór hópur af Íslendingum væru á leiðinni hingað út, ég ákvað að kynna mér málið, tók inntökupróf og 2 vikum síðar var ég flutt út. Ég sé alls ekki eftir þessari ákvörðun.

 

– Í hvernig húsnæði býrðu og hvar? Er það dýrara en að leigja heima á Íslandi?
Ég er að leigja íbúð í fjölbýli alveg miðsvæðis í Martin. Við erum nánast eingöngu Íslendingar sem búum hér í þessari byggingu, enda sækjumst við nemendurnir flest í að búa á sama svæðinu, sem styðst frá öllum helstu stöðum. Ég er í um 5 mínútur að labba í miðbæinn, sjúkrahússvæðið er hér á enda götunnar og það er allt til alls í göngufæri. Gæti ekki verið betra! Leiguverð hér er mjög ódýrt, við sem útlendingar hér borgum að vísu hærri leigu heldur en heimamenn en samt sem áður er það ódýrara en á Íslandi.

– Er dýrt að lifa í borginni miðað við Ísland?
Hér er mjög ódýrt að lifa, fyrir Íslending að minnsta kosti. Matur, fatnaður, leiguverð og annað er áberandi lægra heldur en á Íslandi. Tekjur heimamanna eru ekki eitthvað til að hrópa húrra fyrir og eru margir sem búa á götunni hérna, svo það fer kannski svolítið eftir því hvaðan maður er, hvort maður telji það ódýrt að búa hér eða ekki.

– Hver eru frægustu kennileiti borgarinnar? Mestu túristastaðirnir?
Það er fjöldinn allur af fallegum söfnum og galleríum hérna í Martin sem mjög áhugavert er að skoða. Kastalar eru út um allt hérna, sem dæmi Blatnica castle og Sklabina castle. Það sem allir Slóvakar eru stoltir af eru fjöllin hér allt í kring. Fjallgarðarnir kallast Velká Fatra og Malá Fatra, ég hef gengið upp á nokkur fjöll og útsýnið er hreint út sagt magnað. Martinské Hole er svo hérna eins og ,,Hlíðarfjall” Martin, maður hefur það í bakgarðinum sínum nánast. Šútovo er leynd perla, gríðarlega fallegt vatn sem gaman er að koma á sumrin, þar er svo foss sem hægt er að ganga upp að. Ef ég á að nefna eitthvað annað en söfn og fjallgarða þá verð ég að nefna veitingastað sem heitir Habanero, steikhús sem er tileinkað Harley Davidson, með alls konar minjagripum og skemmtilegum hlutum hengda upp á vegg, til dæmis fimmhundruð kallinn okkar Íslendinga. Staðurinn er þekktur fyrir steikurnar sínar og risastóra hamborgara.

– Er einhver staður í borginni sem fáir vita af, en nauðsynlegt er að skoða?

Það er ekki neitt sérstakt sem kemur upp í hugann, enda erum við nemendurnir fljótir að láta allt berast á milli sem okkur líkar vel við. Ég þarf að fara í það verkefni að finna mér einhvern leynistað og láta engan vita af.

– Uppáhalds veitingastaður/kaffihús í borginni?

Uppáhalds kaffihúsið mitt heitir
Čáry Máry, sem þýðir hókus pókus á góðri íslensku. Ég sit einmitt þar í þessum skrifuðu orðum. Það er svolítill gamaldags fílingur hér, vinalegt starfsfólk, góð tónlist, dýrindis kaffi og kökurnar – við skulum ekki byrja á því að ræða þær. Á kvöldin er svo oft lifandi tónlist, mjög skemmtileg stemning. Ég kem mikið hingað í frítímanum mínum, sem og aðrir nemendur.

 

– Kanntu tungumálið? Hvernig er tungumálið í samanburði við íslensku? –
Ég kann slóvakísku svona upp að vissu marki, ég bjarga mér alveg og tala við sjúklingana á sjúkrahúsinu en ég er ekki á því stigi að geta haldið uppi löngum samræðum við slóvaka um lífið og tilveruna. Þeir tala rosalega hratt og oft erfitt að skilja hvað þeir eru að segja. Tungumálið er gjörólíkt íslenskunni og það er ekkert sem þú getur tengt við íslenskuna til að reyna að læra málið sem hraðast.

Varstu vör við eitthvað menningarsjokk þegar þú fluttir fyrst?
Já og nei. Ég sá það alltaf meira og meira með hverjum deginum hversu ólík þessi lönd eru, Ísland og Slóvakía. Nánast enginn talaði ensku, ég sjálf kunni ekki stakt orð í slóvakísku svo samskiptin voru kannski ekki þau auðveldustu til að byrja með. Hvergi var hægt að borga með korti, nema í stórmörkuðunum. Það var svo furðulegt að venjast umferðinni, stærsta umferðargatan hér í Martin er einstefnugata, mjög skondið. Umferðin gengur í einskonar hring og svo eru litlar hliðargötur út frá þessum stóra hring. Byggingarnar hér eru flestar mjög gamlar og ekki eins og maður er vanur á Íslandi. Ég lærði að meta þennan mun á löndunum, að læra að lifa í landi þar sem menningin, siðir og venjur eru allt aðrar en á Íslandi er klárlega eitthvað sem allir ættu að prófa. Martin hefur breyst mikið frá því að ég flutti hingað fyrst, margar nýjar byggingar, slóvakarnir eru ekki jafn feimnir við að tala enskuna lengur, gatnakerfið er orðið betra, maturinn á veitingastöðum betri, meira úrval af kaffihúsum ofl. Það er mikil uppbygging í gangi hér, ég hlakka mikið til að sjá hvernig Martin verður eftir 5 ár.

Einhver hluti menningarinnar sem er svo gjörólíkur þeirri íslensku?

Já það er sko óhætt að segja það. Hér vakna heimamenn á milli 5 og 6 á morgnanna og eru farnir í háttinn um 9 leytið. Ég vakna yfirleitt við umferðina um hálf 6 á morgnana, miðbærinn er troðinn af fólki um 7, svo aftur á móti er allt orðið tómt um 8 leytið á kvöldin. Öll umferð hætt og varla sála á ferli. Lokaprófin hjá okkur í skólanum byrja til dæmis flest klukkan 7 á morgnanna, það er ekkert eðlilegra fyrir þeim.
Svo er tískan hjá eldri konum frekar ólík því sem maður þekkir heima, hérna er agalega smart að vera með bleikt, blátt, fjólublátt og jafnvel grænt hár ef þú ert komin yfir sextugt. Ætli þær haldi ekki að þetta yngji þær um nokkur ár í útliti.

Hugsunarhátturinn hjá karlmönnum gagnvart konum er ekki eins og heima, hér á karlmaðurinn að sjá fyrir konunni, á meðan konan sér um það að hugsa um heimilið, t.d. er fæðingarorlof hér 2 ár. Þetta er þó að breytast, ég hugsa að eftir einhver ár verði þessi mál á svipuðum stað og á Íslandi.


– Hvað einkennir heimamenn?

Mér þykir heimamenn vera mjög vingjarnlegir. Rosalega mikið af útivistarfólki, enda ekki annað hægt þegar þau hafa fjöllin allt í kring. Allir virðast vera A-týpur út í gegn. Til að byrja með tóku Slóvakar ekki sérlega vel á móti okkur nemendum, kannski aðallega vegna þess að við skildum ekki hvort annað, en það hefur mikið breyst, sérstaklega eftir að maður fór að tala tungumálið þeirra aðeins. En slóvakarnir eru eins ólíkir og þeir eru margir.

– Helstu kostir borgarinnar?
Rólegheitin klárlega finnst mér. Það er ekki svona stórborgarfílingur hérna, enda búa einungis 60.000 manns í Martin. Oft finnst mér eins og ég sé bara heima á Akureyri, maður rekst alltaf á einhvern sem maður þekkir. Það er bara góður og notalegur andi hérna yfir öllu. Svo er líka mjög stór kostur að það er allt í göngufæri. Ég má eiginlega ekki sleppa því að minnast líka á fjöllin sem umlykja borgina, þau eru ævintýri líkust, sérstaklega á haustin, þakin háum trjám, þvílík litadýrð.

– Helstu gallar borgarinnar?
Úff, þessi er erfið. Helstu gallar að mínu mati eru kannski þeir að á sunnudögum er flest allt lokað. Það kemur fyrir að manni finnist þetta vera aðeins of lítill staður, en þá er kostur að við fáum frítt í lestina og getum ferðast nánast hvert sem er innan Evrópu fyrir mjög lítinn pening.

– Gætirðu séð fyrir þér að setjast að til frambúðar í þessari borg?
Eins og er þá er svarið nei, en það er einfaldlega vegna þess að ég er svo mikil fjölskyldumanneskja og hreinlega get ekki beðið eftir að flytja heim og vera nær fjölskyldunni. Mér líður rosalega vel hérna og myndi engu breyta ef ég gæti farið aftur í tímann. Fólkið hér er dásamlegt, náttúran fær 10/10, það er allt til alls hér en það er fjölskyldan sem heldur í mann. Ég mun hins vegar alveg bókað koma í heimsókn í framtíðinni og sjá hvað hefur breyst.

iris

Fjallganga í Slóvakíu

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó