Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Brasilískar systur bætast í hópinn hjá KA/Þór

Brasilískar systur bætast í hópinn hjá KA/Þór

Handknattleiksdeild KA/Þórs hefur gengið frá samningum við brasilískar systur, Nathália Fraga og Isabelle Fraga um að leika með liðinu í vetur.

Vonir standa til að Nathália Fraga geti spilað gegn Stjörnunni en verið er að klára síðustu pappírana tengt atvinnuleyfinu hennar. Hún hefur þó æft með liðinu síðustu vikur og mikil eftirvænting að fá hana inn í hópinn, segir í tilkynningu KA/Þórs. Systir hennar, Isabelle Fraga kemur síðan til liðs við KA um miðjan október þegar hún hefur lokið deildarkeppninni út í Brasilíu.

Isabelle er 21 árs miðjumaður og vinstri skytta, systir henna Nathalia er 28 ára, hefur þann eiginleika að vera jafnhent og getur leyst af allar stöður fyrir utan sem og hornin bæði ef þörf krefur.

Nánar á vef KA.

Sambíó

UMMÆLI