Breyting á deiliskipulagi vegna heilsugæslustöðvar við Þórunnarstræti

Breyting á deiliskipulagi vegna heilsugæslustöðvar við Þórunnarstræti

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í vikunni auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Tjaldsvæðisreit við Þórunnarstræti vegna nýrrar heilsugæslustöðvar sem á að rísa á svæðinu. Sú tillaga sem var samþykkt að auglýsa felur í sér afmörkun lóðar fyrir um 1.700 fm heilsugæslu á norðvesturhluta svæðisins þar sem nú eru bílastæði. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Að auki er gert ráð fyrir stækkun hótellóðar og viðbyggingu við vesturhluta Icelandair hótels. Einnig færist aðkoma frá Þingvallastræti til vesturs, auk þess sem breytingar eru gerðar á afmörkun bílastæða, gangstétta o.fl.

Skýringarmynd: Akureyri.is

Tillagan verður auglýst formlega á næstu dögum, í samræmi við skipulagslög, og hafa íbúar og aðrir hagsmunaaðilar sex vikur til að gera athugasemdir.

„Breytingin er gerð í góðu samráði við Heilbrigðisstofnun Norðurlands, sem annast rekstur heilsugæslustöðvarinnar, og þegar hún hefur öðlast gildi er stefnt að því að bjóða út framkvæmdir,“ segir á vef bæjarins.

Hér er hægt að skoða tillöguna. 

UMMÆLI

Sambíó