Bryndís Rún Hansen í 30.sæti

Bryndís Rún Hansen sundkona

Bryndís Rún Hansen synti 100 metra skriðsund á 56,11 sekúndum á heims­meist­ara­mót­inu í sundi í 50 metra laug í Búdapest í Ung­verjalandi í morg­un.

Hún var skráð með 37. besta tímann og endar í 30.sæti af 79 keppendum. Hennar besti tími í 100 metra sundi er 55,98
sek­únd­ur, sem hún náði á Smáþjóðal­eik­un­um 2015. Til þess að komast í undanúrslit í greininni hefði hún þurft að vera undir tímanum 54,49 sekúndur.

 

Sambíó

UMMÆLI