Origo Akureyri

Búast má við svifryksmengun á Akureyri

Búast má við svifryksmengun á Akureyri

Nú eru aðstæður þannig að búast má við svifryksmengun á Akureyri. Á miðvikudaginn var sólarhringsmeðaltal loftgæðamælistöðvar við Strandgötu um 40 µg/m³ en heilsuverndarmörk á sólarhring miðast við 50 µg/m³. Ekki er spáð úrkomu að ráði fyrr en eftir helgi og því má búast við umtalsverðri svifryksmengun í dag og næstu daga. Akureyrarbær og Vegagerðin munu rykbinda götur ef aðstæður leyfa. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.

Þar eru íbúar hvattir til þess að draga úr akstri eins og kostur er, til dæmis með því að nýta sér almenningssamgöngur, sameinast í bíla, hjóla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Aldraðir, börn og fólk sem þolir illa álag á öndunarfæri ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni fjölfarinna umferðagatna.

Hægt er að fylgjast með mælingum á styrk svifryks og annarra mengunarefna við Strandgötu á vefnum loftgæði.is.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó