Búið að finna lík í Núpá

Búið að finna lík í Núpá

Laust eftir hádegi tilkynnti áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar að búið væri að finna lík í Núpá við Fossgil. Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Þar segir að líkið sé talið vera af piltinum Leif Magnus Grétarssyni Thisland sem saknað hefur verið frá því á miðvikudagskvöld. Aðstandendur hans voru upplýstir, sem og norska sendiráðið á Íslandi. Nú rétt fyrir klukkan 15:00, var lögreglan upplýst um að björgunaraðilar á vettvangi væru búnir að ná líkinu upp úr ánni og var það flutt til Akureyrar með þyrlu.

„Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra vill þakka öllum viðbragðsaðilum sem að þessari leit komu fyrir umfangsmikið og óeigingjarnt starf við mjög erfið leitarskilyrði,“ segir í tilkynningu.

UMMÆLI