Byrjað að sprengja í Sandgerðisbót

Mynd úr skólpdælustöð (af vef Norðurorku)

Mynd úr skólpdælustöð (af vef Norðurorku)

Framkvæmdir við hreinsistöð fráveitu Akureyrar í Sandgerðisbót eru hafnar og þáttur í þeim eru jarðvegsframkvæmdir á svæðinu. Meðal þess sem þarf að gera er að sprengja klöpp fyrir dælukjallara og sveifluþró. Sprengingarnar munu fara fram daglega út þessa viku. Þjónustuver Norðurorku hefur haft samband við húseigendur á svæðinu til að láta vita af framkvæmdinni.

Í tilkynningu frá Norðurorku eru vegfarendur beðnir að sýna ítrustu varkárni á svæðinu og fara ekki nærri vinnusvæðinu

Sambíó

UMMÆLI