Daði Jónsson snýr aftur heim í KA

Daði Jónsson snýr aftur heim í KA

Handknattleiksmaðurinn Daði Jónsson mun spila fyrir KA í Olís deild karla í handbolta í vetur. Daði skrifaði undir samning hjá liðinu í dag en hann er uppalinn í KA.

„Handknattleiksliði KA barst í dag gríðarlega góður liðsstyrkur þegar Daði Jónsson sneri aftur heim. Daði sem verður 26 ára síðar á árinu er uppalinn hjá okkur í KA og brennur svo sannarlega fyrir félagið. Hann hefur verið leiðandi í baráttunni bæði innan sem utan vallar og afar sterkt að fá hann aftur heim,“ segir í tilkynningu á vef KA.

Daði steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með sameiginlegu liði Akureyrar Handboltafélags tímabilið 2016-2017. Í kjölfarið var Daði í lykilhlutverki í uppbyggingu KA liðsins en Daði er ákaflega öflugur varnarmaður auk þess að vera duglegur að drífa liðsfélaga sína áfram.

Daði hefur leikið 87 leiki fyrir KA í deild og bikar og ætti hann því að rjúfa 100 leikja múrinn í vetur. Hann hélt á vit ævintýranna eftir leiktíðina 2020-2021 er hann flutti til Danmerkur.

„Hann snýr nú aftur heim og hlökkum við svo sannarlega til að sjá hann aftur í gulu og bláu treyjunni, velkominn heim Daði!“ segir í tilkynningu KA.


UMMÆLI

Sambíó