Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Dagur Gautason snýr aftur heim í KA

Dagur Gautason snýr aftur heim í KA

Handboltakappinn Dagur Gautason mun snúa aftur í lið KA á næstu leiktíð en þessi 22 ára gamli vinstri hornamaður hefur leikið með Stjörnunni í Garðabæ undanfarin tvö ár. Dagur er uppalinn hjá KA.

Það er gríðarlega jákvætt skref að fá Dag aftur heim en Dagur var meðal annars kallaður til liðs við A-landslið Íslands á Evrópumeistaramótinu sem fram fór í janúar á þessu ári. Við bjóðum Dag hjartanlega velkominn heim og hlökkum til að sjá hann aftur í gula og bláa búningnum á næsta tímabili,“ segir í tilkynningu á vef KA.

Dagur lék sína fyrstu meistaraflokksleiki tímabilið 2017-2018 er KA fór aftur að leika undir eigin merki og skoraði meðal annars ótrúlegt sigurmark á lokasekúndu fyrsta leiks liðsins fyrir troðfullu KA-Heimili sem setti tóninn er liðið fór upp í deild þeirra bestu.

Hann var valinn bestu ungi leikmaðurinn í Olísdeildinni veturinn 2019-2020. Hann var markahæsti leikmaður KA það tímabil og gekk svo í kjölfarið í raðir Stjörnunnar. Þar hefur hann verið í algjöru lykilhlutverki undanfarin tvö ár.

Sambíó

UMMÆLI