Origo Akureyri

Dagur sjúkrahússins á Glerártorgi á laugardaginnFrá degi Sjúkrahússins í fyrra. Ljósmynd: Bragi V. Bergmann

Dagur sjúkrahússins á Glerártorgi á laugardaginn

„Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) ásamt starfsfólki sjúkrahússins standa fyrir
hátíð á Glerártorgi laugardaginn 25. nóvember nk. milli kl. 14:00 og 16:00.“ Þetta kemur fram í tilkynningu þess efnis frá samtökunum, þar sem einnig segir:

„Slík hátíð á Glerártorgi hefur verið árviss viðburður frá stofnun hollvinasamtakanna fyrir 10 árum en féll niður 2020 og 2021 vegna COVID-faraldursins.“

„Starfsfólk sjúkrahússins stendur fyrir mælingu á blóðþrýstingi, súrefnismettun og púlsi. Félagsmenn
í hollvinasamtökunum kynna Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri og skrá nýja félaga. Þá
býðst smáfólkinu að koma með uppáhaldsleikfangið sitt í læknisskoðun. Að sjálfsögðu verður líka
bangsa- og dúkkuhorn á staðnum.“

„Hollvinasamtök SAk eru almannaheillafélag og framlög til Hollvinasamtaka SAk eru frádráttarbær
frá skattstofni gefenda, hvort sem um er að ræða fyrirtæki eða einstaklinga. Árgjaldið er 6.000
krónur og er það sá grunnur sem Hollvinir SAk byggja starfsemi sína á. Þar sannast hið fornkveðna
að margt smátt gerir eitt stórt. Hollvinir SAk eru nú vel á þriðja þúsund talsins en markmiðið er að
fjölga þeim verulega á næstu mánuðum.“

„Hollvinir SAk hvetja sem flesta til að leggja leið sína á Glerártorg á laugardaginn og taka
virkan þátt í dagskránni.“Hollvinir SAk hvetja sem flesta til að leggja leið sína á Glerártorg á laugardaginn og taka virkan þátt í dagskránni.“

UMMÆLI

Sambíó