Danskur framherji æfir með KA á Spáni

KA-menn skoða danskan framherja

Pepsi-deildarlið KA sleikir nú sólina á Spáni þar sem liðið er í æfingaferð og undirbýr sig fyrir átökin sem framundan eru.

Liðið hélt utan um helgina og mun æfa á grasi við toppaðstæður alla þessa viku.

Með liðinu mun æfa danski sóknarmaðurinn Emil Lyng en hann kom til móts við liðið í gær og er á sinni fyrstu æfingu með KA þegar þessi frétt er skrifuð.

Verður ákvörðun tekin um framhaldið síðar í vikunni.

Lyng er 27 ára gamall, stór og stæðilegur sóknarmaður sem getur einnig leyst kantstöðurnar. Hann á nokkuð flottan atvinnumannaferil að baki en hann lék síðast með Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni.

Hann hefur áður leikið utan Danmerkur en hann þótti einn af efnilegustu leikmönnum Dana fyrir nokkrum árum og var keyptur til franska stórliðsins Lille, aðeins nítján ára gamall. Hann lék aðeins fjóra leiki með aðalliði Lille áður en hann yfirgaf félagið. Hann hefur einnig leikið í Belgíu og Sviss.

Þá á hann átta leiki að baki fyrir danska U-21 árs landsliðið.

Ferilskrá Emil Lyng


UMMÆLI

Sambíó