easyJet byrjað að selja flugferðir út febrúar til Akureyrar

easyJet byrjað að selja flugferðir út febrúar til Akureyrar

Breska flugfélagið easyJet tilkynnti í morgun flugáætlun sína fyrir tímabilið desember 2024- febrúar 2025. Nú er hægt að bóka ferðir með flugfélaginu til og frá Akureyri á þessu tímabili, sem bætist við október og nóvember sem áður hafði verið tilkynnt um.

Flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum. Viðtökurnar hafa við fluginu hafa verið frábærar og eftir því sem liðið hefur á hefur erlendum ferðamönnum fjölgað mjög í vélum easyJet. Fyrstu mánuðina sem flogið var í vetur voru Norðlendingar í meirihluta í vélum flugfélagsins og því ljóst að eftirspurn heimamanna hefur haft jákvæð áhrif á áætlanir flugfélagsins fyrir næsta vetur.

Í vetur hefur Markaðsstofa Norðurlands birt viðtöl við fólk í ferðaþjónustu þar sem meðal annars var spurt um áhrifin af auknu millilandaflugi. Viðtölin má sjá hér en augljóst er af svörunum að dæma, að áhrifin hafa verið veruleg og jákvæð. Með auknum fjölda ferðamanna yfir vetrartímann minnkar árstíðasveiflan sem hefur einkennt norðlenska ferðaþjónustu sem gefur fyrirtækjum betri tækifæri til að bjóða upp á heilsársstörf og þróa vöruframboð yfir allt árið.

UMMÆLI

Sambíó