KIA

„Ef að KA mönnum finnst ekkert að því að nota afrekssjóð til eigin nota þá kemur þetta mér ekki á óvart“

„Ef að KA mönnum finnst ekkert að því að nota afrekssjóð til eigin nota þá kemur þetta mér ekki á óvart“

Eins og við greindum frá fyrr í kvöld  hefur KA ákveðið að end­ur­nýja ekki samn­inga við Þór um sam­eig­in­lega meist­ara­flokka kvenna í hand­knatt­leik og knatt­spyrnu sem hafa verið í gildi frá ár­inu 2001.

Aðal­stjórn KA samþykkti þetta á fundi sín­um í gær og yf­ir­lýs­ing var birt fyr­ir stundu á vef fé­lags­ins.

Kaffið.is náði tali af Siguróla Kristjánssyni, Mola eins og hann er kallaður,  fyrrum aðstoðarþjálfara liðsins en hann vann í kringum liðið í áratug áður en hann hætti nú í haust.

Öll skynsemi fellur að því að við höldum áfram því frábæra starfi sem Þór/KA hefur verið með og þetta eru ekkert annað en hryllilegar fréttir. Ef að KA mönnum finnst ekkert að því að þeir noti afrekssjóð frá KSÍ fyrir undanfarin 3 ár til eigin nota  þá kemur mér ekki á óvart að þessir sömu aðilar slíti samstarfinu,” segir Moli, ómyrkur í máli.

Hvað framhaldið varðar segir Kristján það mjög óljóst,
„Þetta er afleit tímasetning korter fyrir mót, ég á erfitt með að sjá að forráðamenn Þór/KA geti farið í mótið í sumar með þessa ákvörðun á bakinu.“ 

UMMÆLI

Sambíó