Efnið í endurvinnslunni reyndist vera ólöglegt skordýraeitur

Efnið í endurvinnslunni reyndist vera ólöglegt skordýraeitur

Niðurstöður efnagreiningar á eitri sem fannst í endurvinnslunni á Akureyri um miðjan febrúar liggja nú fyrir. Efnið reyndist vera skordýraeitur sem hefur verið bannað hér á landi síðan 2020. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Þar segir að lögreglan hafi tilkynnt niðurstöður greiningar til Umhverfisstofnunar og sóttvarnaryfirvalda en hyggst ekki aðhafast meira í málinu að svo stöddu. Engin grunur liggur á því hvaðan efnið hafi komið þegar það rataði í Endurvinnsluna eða í hvaða tilgangi það hafi verið notað.

15. febrúar síðastliðinn lak efnið niður á gólf í endurvinnslunni og tveir starfsmenn voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri í kjölfarið. Óskað var eftir því að að íbú­ar á Eyr­inni, sunn­an við Furu­velli, myndu halda sig inn­an­dyra og hafa glugga lokaða. 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó