Eiginlegur höfrungur í EyjafirðiStarfsfólk Eldingar rak upp stór augu þegar þau sáu þessa tegund svo norðarlega á hnettinum. Ljósmynd: Mac Murfitt

Eiginlegur höfrungur í Eyjafirði

Sést hefur til eiginlegs höfrungs (Delphinus delphis) í hvalaskoðunarferðum Eldingar í Eyjafirði í gær og í dag. Dýrið var eitt á ferð í grennd við Akureyri.

Eiginlegir höfrungar (e. Short-beaked common dolphin) eru ein algengasta höfrungategund heims, en þeir eru hitabeltisdýr sem koma afar sjaldan svona langt norður. Er þetta einungis í annað skipti sem þessi tegund hefur sést í Eyjafirði svo vitað sé til, en samkvæmt hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu var fyrsta skiptið sumarið 2023.

Meðfylgjandi eru myndir af dýrinu sem teknar voru af starfsfólki Eldingar á milli klukkan 9 og 11 í gærmorgun.

Þetta er líklega ein af örfáum myndum af þessari tegund sem til er með snævi þöktum fjöllum í bakgrunni. Ljósmynd: Mac Murfitt
Óneitanlega hlýtur þessi fallegi einstaklingur að vera einmanna, en ekki hefur sést til annarra dýra hans tegundar í firðinum og eru eiginlegir höfrungar þó miklar félagsverur. Ljósmynd: David Pešek

UMMÆLI