Einn einstaklingur tekinn af öndunarvél á Akureyri

Einn einstaklingur tekinn af öndunarvél á Akureyri

Einn einstaklingur er nú í öndunarvél á Akureyri en einn hefur verið tekinn af öndunarvél. Þetta kom fram á upp­lýs­inga­fundi Al­manna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra sem hófst klukkan 14.

Sjá einnig: 46 staðfest smit á Norðurlandi eystra

Fjórir eru inniliggjandi á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Fjórir hafa verið útskrifaðir. Tveir einstaklingar eru enn á gjörgæslu á Akureyri.

Staðfest smit á Norðurlandi eystra eru orðin 46 en 36 einstaklingar eru í einangrun á svæðinu þar af 30 á Akureyri.


UMMÆLI