Prenthaus

Einn gisti fangageymslur á Akureyri

Einn gisti fangageymslur á Akureyri

Töluverður erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í nótt en þó var minna að gera hjá lögreglunni á Akureyri en á aðfaranótt sunnudags. Þetta kemur fram á vefnum mbl.is í morgun.

Þar segir að einn hafi gist fangageymslur lögreglunnar á Akureyri vegna ástands og að eitthvað hafi verið um útköll vegna hávaða og ölvunar. Það hafi þó verið mun minna en nóttina á undan.

Lög­regl­an á Norður­landi eystra verður við eft­ir­lit á þjóðveg­um um­dæm­is­ins í dag en það er búist við mikilli umferð eins og venjan er á frí­degi versl­un­ar­manna þegar ferðalang­ar halda til síns heima eft­ir ferðalög helgar­inn­ar. 

UMMÆLI

Sambíó