Prenthaus

Ekið á hjólandi vegfaranda á Akureyri – Lögreglan óskar eftir vitnum

Ekið á hjólandi vegfaranda á Akureyri – Lögreglan óskar eftir vitnum

Lögreglan á Akureyri hefur óskað eftir vitnum að umferðaróhappi sem átti sér stað í gær, 14. ágúst, um klukkan 16:00. Ekið var á hjólandi vegfaranda. Einstaklingurinn slasaðist ekki en varð fyrir eignatjóni.

Í tilkynningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra á Facebook segir að ökumaður bifreiðarinnar hafi ekið af vettvangi án þess að gæta að vegfarandanum.

„Ef einhver hefur orðið þessa var er sá hinn sami beðinn að setja sig í samband við lögregluna á Akureyri í síma 444-2800. Eins myndum við vilja heyra í umræddum ökumanni þessarar bifreiðar ef hann vildi vera svo vænn,“ skrifar lögreglan á Facebook.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó