Ekkert fullnægjandi tilboð í rekstur HlíðarfjallsMynd: Akureyri.is

Ekkert fullnægjandi tilboð í rekstur Hlíðarfjalls

Aðeins eitt tilboð barst áður en frestur til þess að skila inn tilboðum í rekstur og starfsemi Hlíðarfjalls rann út þann 9. ágúst síðastliðinn. Tilbðið reyndist ekki uppfylla hæfisskilyrði og var því hafnað.

Ríkiskaup, fyrir hönd Akureyrarbæjar, óskaði eftir tilboðum í heilsársrekstur skíða- og útvistarsvæðisins í Hlíðarfjalli þar sem markmiðið var að Hlíðarfjall yrði nýtt á sem fjölbreytilegastan máta fyrir samfélagið á Akureyri og gesti. Útboðið var auglýst í lok júní með tilboðsfresti til hádegis 9. ágúst.

Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir að stjórn Hlíðarfjalls muni nú í framhaldinu fara yfir stöðuna og meta hver næstu skref verða í málinu.

Sambíó

UMMÆLI