KIA

Elsa Guðrún íþróttamaður ársins í Fjallabyggð annað árið í röð

Val á íþróttamanni ársins í Fjallabyggð fór fram föstudaginn 29. desember sl., og var það skíðagöngukonan Elsa Guðrún Jónsdóttir frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar sem var valin íþróttamaður ársins og skíðakona ársins í Fjallabyggð. Er það annað árið í röð sem hún hlýtur þann titil.

Elsa Guðrún stóð sig vel á göngubrautinni á árinu en hápunkturinn hennar var án efa sigur í forkeppni HM, sem tryggði henni þáttökurétt í öllum keppnisgreinum á HM í Finnlandi á næsta ári. Með árangri sínum á árinu tryggði Elsa sér einnig þáttökurétt á Vetrarólympíuleikunum sem fram fara í Suður Kóreu í febrúar nk.

Athöfnin fór fram á Kaffi Rauðku og eru það Kiwanisklúbburinn Skjöldur í Fjallabyggð og Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar sem standa saman að valinu.

Einnig voru valin efnilegasta og besta íþróttafólk hverrar greinar en 39 voru tilnefndir í ár. Hvert aðildarfélag tilnefndi allt að þrjá iðkendur í kjörinu á íþróttamanni hverrar greinar (19 ára og eldri) en þeir sem urðu fyrir valinu voru eftirtaldir:

  • Blakmaður ársins: Þórarinn Hannesson frá BF
  • Bocciamaður ársins: Hrafnhildur Sverrisdóttir frá Snerpu
  • Knattspyrnumaður ársins: Andri Freyr Sveinsson frá KF
  • Kraftlyftingarmaður ársins: Hilmar Símonarson frá KFÓ
  • Kylfingur ársins: Sigurbjörn Þorgeirsson frá GKF
  • Skíðamaður ársins: Elsa Guðrún Jónsdóttir frá SÓ

Aðildarfélögin tilnefndu líka unga og efnilega iðkendur í báðum kynjum og fengu eftirtaldir viðurkenningu fyrir árangur sinn í eftirfarandi íþróttagreinum:

  • Badminton: Hörður Ingi Kristjánsson og Anna Brynja Agnarsdóttir
  • Blak: Eduard Constantin Bors og Oddný Halla Haraldsdóttir
  • Hestamennska: Hörður Ingi Kristjánsson og Marlis Jóna Karlsdóttir
  • Knattspyrna: Vitor Vieira Thomas og Anna Brynja Agnarsdóttir
  • Golf: Þorgeir Örn Sigurbjörnsson og Sara Sigurbjörnsdóttir
  • Skíði: Alexander Smári Þorvaldsson og Helga Dís Magnúsdóttir

Ármann Þórðarson var heiðraður fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþróttamála í Fjallabyggð en Ármann hefur tekið þátt í og komið að íþróttamálum í Ólafsfirði í um 7 áratugi og var m.a. einn af stofnendum Golfklúbbs Ólafsfjarðar árið 1968. Síðan þá hefur Ármann unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir klúbbinn.

Kara Gautadóttir, úr Ólafsfirði, var einnig heiðruð á hátíðinni fyrir frábæran íþróttaárangur á árinu en Kara keppir fyrir Kraftlyftingarfélag Akureyrar. Hún var m.a. í 2. sæti á Norðurlandamótinu og í 3. sæti á Evrópumóti unglinga í sínum þyngdarflokki.

Fréttatexti og myndir fengnar af vef UÍF

Sambíó

UMMÆLI