Enginn inniliggjandi á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna Covid-19

Enginn inniliggjandi á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna Covid-19

Enginn er inniliggjandi vegna Covid-19 á Sjúkrahúsinun á Akureyri, sjúkrahúsið er þó enn á óvissustigi. Á fjórða tug starfsmanna sjúkrahússins er fjarverandi vegna einangrunar eða sóttkvíar. Miðað við stöðuna og þróunina að undanförnu má búast við frekari fjölgun í þeim hópi á næstunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðbragðsstjórn sjúkrahússins í gær.

Samkvæmt nýjustu tölum á covid.is eru 389 einstaklingar í einangrun á Norðurlandi eystra og 921 í sóttkví. Í tilkynningu frá viðbragðsstjórn SAk segir að staðan í kringum Covid-19 sé að ýmsu leyti breytt, þrátt fyrir að nú sé dreifing veirunnar meiri en áður hafi sést í faraldrinum. Núna eru það ekki alvarleg veikindi inniliggjandi Covid-19 sjúklinga sem er aðaláhyggjuefnið heldur það hve mikill fjöldi starfsmanna sjúkrahússins mun lenda í sóttkví eða einangrun á hverjum tíma, með tilheyrandi áhrifum á þjónustu og rekstur sjúkrahússins.

„Hefur fjöldinn skipt tugum á hverjum degi að undanförnu. Sem betur fer virðist ekki vera mikið um alvarleg veikindi og einkennin hafa verið frekar léttvæg í lang flestum tilvikum. Hingað til hefur með samstilltu átaki tekist að vinna úr þeirri stöðu sem manneklan skapar. Starfsfólk hefur færst á milli eininga og tekist á við þær áskoranir sem í því felast að koma inn í nýjar aðstæður og fást við ný verkefni. Það hefur verið einstakt að upplifa þá jákvæðni og samstöðu sem einkennt hefur viðbrögð starfsmanna. Þetta sýnir okkur og sannar enn og aftur að starfsfólk sjúkrahússins á Akureyri er einstakt lið. Og með einstöku liði er allt hægt, nema kannski að vinna Danina,“ segir í tilkynningu viðbragðsstjórnarinnar.

Sambíó

UMMÆLI