![](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/12/eva-maria-karvels-mynd-2--400x301.jpg)
Mynd: Elvar Freyr Pálsson
Eva María Karvelsdóttir var valin íshokkíkona ársins 2017 af stjórn Íshokkísambands Íslands. Eva spilar með Ásynjum í Skautafélagi Akureyrar og hefur um árabil spilað með landsliði Íslands.
Á heimsmeistaramótinu sem haldið var á Akureyri í febrúar á þessu ári var Eva María valin besti varnarmaður móstins.
Í tilknningu frá Íshokkísambandi Íslands segir: „Eva María er vel að þessu komin enda frábær leikmaður í alla staði. Eva María er fyrirmynd margra ungra leikmanna og er íshokkíhreyfingunni á Íslandi til mikils sóma.“
UMMÆLI