Eyfirski safnadagurinn sumardaginn fyrsta

Eyfirski safnadagurinn sumardaginn fyrsta

Sumardaginn fyrsta, 20. apríl næstkomandi, verður Eyfirski safnadagurinn og þá munu söfn og sýningar við Eyjafjörð opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi.

Eyfirski safnadagurinn var fyrst haldinn árið 2007 og hefur verið haldinn árlega síðan, fyrir utan þegar einn lítill heimsfaraldur setti strik í reikninginn árið 2020.

13 söfn og sýningar við Eyjafjörð munu opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi undir heitinu Eyfirski safnadagurinn. Markmiðið er að vekja athygli á fjölda fróðlegra og forvitnilegra safna sem eru við Eyjafjörð.

Enginn aðgangseyrir er að söfnunum á Eyfirska safnadeginum. Samræmdur opnunartími safnanna er frá 13.00 – 16.00 en sum eru með opið lengur. Mælum með að áhugasamir fylgist með opnunartímum og dagskrá á samfélagsmiðlum safnanna.

Söfnin sem opna dyr sínar eru Hælið, Listasafnið á Akureyri, Flugsafnið, Iðnaðarsafnið, Minjasafnið, Nonnahús, Davíðshús, Leikfangasafnið, Mótorhjólasafnið, Hús Hákarlajörundar, Síldarminjasafnið, Flóra menningarhús í Sigurhæðum og Smámunasafn Sverris Hermannssonar.


UMMÆLI