Togarinn Björg EA 7 hélt til veiða síðdegis í gær eftir að hafa landað góðum afla á Akureyri.
Guðmundur Freyr Guðmundsson hefur verið skipstjóri á Björgu frá því skipið kom nýtt til landsins fyrir sex árum síðan. Hann er oftar en ekki með myndavél í brúnni og grípur til hennar þegar honum þykir ástæða til. Eyjafjörður skartaði sínu fegursta í haustblíðunni í gær, Guðmundur Freyr stóðst ekki mátið og náði í myndavélina góðu.
„Eyjafjörður er alltaf gott myndefni, hvort sem maður er að hefja sjóferð eða enda. Veðrið í gær var frábært og útsýnið stórkostlegt. Mér finnst gaman að taka myndir, mætti sjálfsagt vera duglegri en í gær var ekki annað hægt en að bæta nokkrum myndum í albúmið.“
Hér fyrir neðan getur að líta nokkrar þeirra mynda sem Guðmundur Freyr tók á útstíminu í gær.
![](https://www.samherji.is/static/files/_blob/vwp1d0gbbrmpyl5r70on4.jpg)
![](https://www.samherji.is/static/files/_blob/nhg58a08a1df97kcukhnwn.jpg)
![](https://www.samherji.is/static/files/_blob/rypxuaks8h6pg36tsagi6.jpg)
![](https://www.samherji.is/static/files/_blob/8uag64z54vndgrvhykj9p9.jpg)
![](https://www.samherji.is/static/files/_blob/nbwyb5ao5houpeacukcsbm.jpg)
![](https://www.samherji.is/static/files/_blob/ulvtmyisf1lqxu63bur9i.jpg)
Myndir og frétt: Samherji.is/ Guðmundur Freyr
UMMÆLI