Fá rými til að vaxa á NorðurlandiLaugarmýri í Skagafirði

Fá rými til að vaxa á Norðurlandi

Fyrstu regnhlífarsamtök nýsköpunar á landsbyggðinni hafa verið sett á laggirnar undir nafninu Norðanátt. Um er að ræða samstarfsverkefni stuðningsaðila í nýsköpunarumhverfinu á Norðurlandi sem miða að því að skapa kraftmikið umhverfi í landsfjórðunginum fyrir nýsköpun. Að verkefninu koma Eimur, SSNV, SSNE, Nýsköpun í norðri og RATA. Norðanáttar leggur áherslu á  nýsköpun á sviði sjálfbærni, orku, vatni og mat.

Norðurland er ríkt af auðlindum sem styðja við mat-, vatn- og orkutengda nýsköpun og þar eru einnig sterkur hópur frumkvöðla. Þetta endurspeglast meðal annars í  árangri frumkvöðla af svæðinu í Matvælasjóði, en tæplega 30% úthlutunar sjóðsins í ár fer beint til frumkvöðla á Norðurlandi.

„Síðustu misseri hefur nýsköpun í matvælaframleiðslu og sjálfbærri nýtingu orkuauðlinda vaxið fiskur um hrygg. Það er því sannarlega réttur tímapunktur að setja á stofn Norðanátt, sem mun gegna lykilhlutverki í því að koma öflugum hugmyndum á næsta stig“ (Sveinn Margeirsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps)

Norðanátt er hreyfiafl sem er ætlað að styrkja frumkvöðla á öllum stigum og skapa sterkt samfélag nýsköpunar á Norðurlandi. Verkefnið hlaut styrk frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu til að þróa verkefnið áfram en markmiðið er að vera með sjálfbært kerfi fyrir frumkvöðla sem verður síðan til verðmætasköpunar í samfélaginu.

Norðanátt byggir á hringrás árlegra viðburða þar sem frumkvöðlar fá tækifæri til að þróa hugmyndir sínar, vaxa og ná lengra. Hringrásin samanstendur af lausnamóti, vinnusmiðju, viðskiptahraðli og fjárfestamóti. 

Næsti liður í hringrásinni er viðskiptahraðallinn Vaxtarrými. Verkefnið er sérhannað með þarfir teymanna sem taka þátt í huga og hafa þau þannig áhrif á þá fræðslu sem stendur þeim til boða. Teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur, frumkvöðla, fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja á Norðurlandi, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli. Hraðallinn fer að mestu leyti fram á netinu sem hentar frumkvöðlum á landsbyggðinni vel þar sem þau er staðsett á mismunandi svæðum á Norðurlandi. Jafnframt hittast teymin fjórum sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi.

„Samstarfið, sem er í anda klasa stefnunnar, er mikilvægur liður í að byggja upp samheldið teymi sérfræðinga á svæðinu sem allir hafa það markmið að styðja við bakið á frumkvöðlum og nýsköpun og þannig verðmætasköpun á Norðurlandi. Við erum sterkari saman og trúum því að við séum á fyrstu metrunum að skapa kröftugt og eftirsóknarvert umhverfi nýsköpunar á svæðinu þar sem við getum nýtt auðlindir okkar til fullnustu, stutt frumkvöðla við uppbyggingu viðskiptatækifæra og dregið að sérfræðinga sem upplifa svæðið sem áhugaverðan kost til að setjast að á. Allt í samvistum við náttúruna, fólkið og auðlindirnar sem við erum svo rík af. Framtíðin er björt á Norðurlandi“ (Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Eims)

Leitað er eftir öflugum fyrirtækjum og verkefnum sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Norðanáttina til að vaxa. Tekið er við umsóknum á vef Norðanáttar www.nordanatt.is

Upptöku af kynningarfundi er að finna hér

Sambíó

UMMÆLI