Fallið frá aðalskipulagsbreytingu á Oddeyri

Fallið frá aðalskipulagsbreytingu á Oddeyri

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum í gær að falla frá auglýstri tillögu að breytingu á aðalskipulagi Oddeyrar. Þetta kemur fram á vef bæjarins í dag.

Skipulagsráð hafði lagt til við bæjarstjórn að falla frá tillögunni, með vísun í niðurstöðu íbúakönnunar sem fór fram fyrr á árinu. „Er mælt með að málefni uppbyggingar á Oddeyri verði tekin til umræðu að nýju að loknum kosningum og þegar bæjarstjórn metur hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið,“ segir í bókun skipulagsráðs frá 24. nóvember sl.

„Breytingin hefur verið í ferli í rúm tvö ár, en skipulagslýsing verkefnisins var kynnt á fundi í Hofi þann 21. október 2019. Drög að breytingu voru kynnt 6. maí 2020 og var tillaga að breytingu síðan auglýst 6. janúar 2021. Að athugasemdafresti loknum samþykkti bæjarstjórn að fá fram sjónarmið íbúa í málinu og var haldin ráðgefandi íbúakosning í gegnum þjónustugátt bæjarins 27.-31. maí 2021. Alls tóku 3.878 manns þátt. Flest greiddu gildandi aðalskipulagi atkvæði, eða 67%. Þar á eftir kom auglýst tillaga þar sem hús geta verið 6-8 hæðir og því næst málamiðlunartillaga með 5-6 hæða húsum að hámarki,“ segir í tilkynningu Akureyrarbæjar.

Sambíó

UMMÆLI