Fimm fulltrúar KA/Þór í landsliðinuMynd: KA.is

Fimm fulltrúar KA/Þór í landsliðinu

Fimm fulltrúar úr handboltaliði KA/Þór verða í landsliði Íslands sem fer til Cheb í Tékklandi dagana 25.-27. nóvember næstkomandi. Hópurinn telur alls 30 leikmenn en Ísland mun tefla fram tveimur liðum.

Fulltrúar KA/Þór í hópnum eru þær Aldís Ásta Heimisdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Rakel Sara Elvarsdóttir, Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Unnur Ómarsdóttir. Þær Aldís, Ásdís, Rut og Unnur voru einnig í síðasta landsliðshóp og kemur Rakel Sara nú inn sem nýliði.

Frá þessu er greint á vef KA en þar segir að það sé ansi spennandi að fylgjast með HSÍ setja enn meiri kraft í umgjörð kvennalandsliðsins.

Stelpurnar munu koma til móts við hópinn í Tékklandi. Á mótinu í Tékklandi tefla Noregur, Sviss og Tékkland fram liðum auk Íslands.

Leikjaplan mótsins er eftirfarandi:

Leikjadagskrá A landsliðsins
25. nóv. kl. 17:00 Ísland – Noregur
26. nóv. kl. 19:00 Ísland – Sviss
27. nóv. kl. 13:00 Ísland – Tékkland

Leikjadagskrá B landsliðsins
25. nóv. kl. 15:00 Ísland – Noregur
26. nóv. kl. 15:00 Ísland – Sviss
27. nóv. kl. 09:00 Ísland – Tékkland

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó