Origo Akureyri

Fimm ný til starfa hjá Maven – Unnið að því að stækka starfsemina á Akureyri

Fimm ný til starfa hjá Maven – Unnið að því að stækka starfsemina á Akureyri

Í takt við aukna eftirspurn hefur Maven, þjónustu- og ráðgjafafyrirtæki í upplýsingatækni, ráðið til sín fimm nýja starfmenn til að styrkja fyrirtækið í þeim nýju verkefnum sem framundan eru. Á meðal þeirra er Akureyringurinn Darri Rafn Hólmarsson sem er fyrsti starfsmaður fyrirtækisins á Akureyri.

Skrifstofa Maven á Akureyri er á Strandgötu 31. Maven er núna komið með einn starfsmann þar en í ljósi aukinna umsvifa er verið að vinna í því að stækka starfsemina fyrir norðan. Viðskiptavinir Maven á Akureyri eru meðal annars Fiskistofa og Náttúrufræðistofnun og meira er í farvatninu. Helgi Hrafn Halldórsson, framkvæmdastjóri Maven, bjó sjálfur lengi á Akureyri og er bæði Dalvíkingur og Akureyringur.

Darri Rafn Hólmarsson er gagnasérfræðingur á starfstöð Maven á Akureyri. Hann hefur lokið BSc gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Darri kemur til Maven frá Advania þar sem hann starfaði m.a. sem ráðgjafi og verkefnastjóri á sviði viðskiptalausna.

Aðrir starfsmenn sem hafa verið ráðnir til Maven eru Sigrún Inga Ólafsdóttir,  og Einar Þór Gunnlaugsson sem öll eru gagnasérfræðingar; Ragnar Stefánsson, sem er sérfræðingur í gagnavísindum og Erna Guðrún Stefánsdóttir, sem er nýr mannauðs- og skrifstofustjóri Maven.

„Við erum hæstánægð með að geta boðið þennan öfluga hóp af sérfræðingum velkominn til starfa til okkar,“ segir Helgi Hrafn Halldórsson. Stjórnendur og fólk almennt eru farin að gera sér grein fyrir mikilvægi og virði gagna til að mynda í gervigreind og vélnámi (e. Machine learning), þar sem sjálfvirknivæðing og skýjalausnir gera fyrirtækjum kleift að nýta gögn betur án mikillar fjárfestingar eða skuldbindingar. Við sjáum mikla eftirspurn eftir þjónustu okkar, sem felst einna helst í því að hjálpa fyrirtækjum af öllum tegundum, stærðum og gerðum að greina og móta gögn þeirra með framsæknum hætti sem skapar virði fyrir þá og þeirra viðskiptavini. Það er okkur því mikils virði að fá þetta reynslumikla fólk til okkar.”

Um Maven

Maven er framsækið þekkingarfyrirtæki í upplýsingatækni sem hóf rekstur sinn árið 2021. Í dag eru starfstöðvar félagsins tvær, í Reykjavík og Akureyri, auk þess sem það er með starfsfólk í Varsjá og Norður Karólínu. Félagið leggur áherslu á að gera stjórnendum og starfsfólki fyrirtækja kleift að öðlast þekkingu og innsýn á þau gögn sem þau búa yfir. Kjarnaþjónustan felst í því að bjóða fyrirtækjum í ýmsum atvinnugeirum upp á aðkomu gagnasérfræðinga Maven sem skapa þekkingu úr margvíslegum gögnum, m.a. með greiningu og stefnumótun, uppbyggingu gagna- og tækniumhverfa, sjálfvirknivæðingu á verkferlum, samþættingu gagna á milli kerfa og gerð mælaborða fyrir stjórnendur. Stjórnendur fyrirtækja fá þannig betri innsýn inn í reksturinn sem leiðir til betri ákvörðunartöku og aukins virðis. Nánari upplýsingar á maven.is  

Sambíó

UMMÆLI