Fimm tilboð bárust í hjólreiða- og göngustíg frá Hrafnagilshverfi til Akureyrar

Hrafnagilshverfi.

Í dag var opnað fyrir tilboð í fyrri áfanga nýs hjóla- og göngustígs frá Hrafnagilshverfi til Akureyri. Framkvæmdinni er ætlað að auka öryggi og draga stórlega úr slysahættu vegfarenda. Umferð gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarenda frá Akureyri og fram í Hrafnagil hefur aukist gríðarlega með auknum áhuga fólks á götuhlaupum og -hjólreiðum. Nauðsynlegt þykir að aðskilja þessa umferð frá akandi umferð með nýjum stíg.

Alls bárust fimm tilboð í verkið. Lægsta tilboð átti Finnur ehf. kr. 81,5 mkr. eða um 83% af kostnaðaráætlun sem er 98,2 mkr. Gert er ráð fyrir að síðari áfangi verði boðinn út í febrúar eða mars árið 2018 og stígurinn verði tilbúinn í sumarbyrjun 2018.

Sambíó

UMMÆLI