Fiskeldisnám verði kennt við Háskólann á Akureyri og Háskólann á Hólum

Fiskeldisnám verði kennt við Háskólann á Akureyri og Háskólann á Hólum

Í nýrri skýrslu sem Háskólinn á Akureyri vann fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið er lagt til að komið verði á laggirnar námi í fiskeldi með samfelldur í námi frá framhaldsskóla til háskóla.

Fram kem­ur að ráðuneytið hafi óskað eft­ir því að unn­in yrði óháð út­tekt á námi í fisk­eldi á Íslandi, gerður yrði sam­an­b­urður við nám á þessu sviði í ná­granna­lönd­um Íslands og lagðar fram til­lög­ur um hvað þyrfti að gera til að geta boðið fram nám af þess­ari teg­und.

Einnig eru lagðar fram tillögur um hvernig auga megi nám í fiskeldi á framhalds- og háskólastigi til að komast til móts við atvinnulífið með auknu og endurbættu námsframboði.

Lagt er til að boðið verði upp á nám á framhaldsskólastigi í almennum framhaldsskólum á þeim svæðum þar sem fiskeldi er fyrst og fremst stundað. Stofnað verði til samstarfs við verkmenntaskóla í Noregi.

Þá er einnig lagt til að sett verði á laggirnar nám við Háskólann á Akureyri og Háskólann á Hólum, þar sem nemendur útskrifist með starfsréttindi á diplóma- eða bakkalárstigi við háskólana. Bókleg kennsla fari fram í háskólunum og verkleg kennsla við framhaldsskólana og innan fyrirtækjanna.

UMMÆLI