Prenthaus

Fiskrétturinn frá mömmu og pabba sem slegið hefur í gegn á Dalvík

Fiskrétturinn frá mömmu og pabba sem slegið hefur í gegn á Dalvík

„Við erum með fisk á boðstólum tvisvar sinnum í viku og það segir sig auðvitað sjálft að hráefnið hérna er alltaf ferskt sem er auðvitað mikill kostur. Fiskurinn nýtur vinsælda hjá flestum og auk þess finnst mér alltaf gaman að elda fisk,“ segir Fanney Davíðsdóttir matráður í fiskvinnsluhúsi Samherja á Dalvík. Fanney hefur deilt uppskrift af dýrindis fiskrétti sem nýtur mikilla vinsælda meðal starfsfólks fiskvinnsluhússins á vef Samherja en uppskriftina má einnig sjá hér að neðan. Að jafnaði eru um 120 manns í mat hjá Fanneyju og hennar samstarfsfólki í mötuneytinu.

Halda að mötuneytið sé háklassa veitingastaður

„Ég hef verið matráður hérna í eitt og hálft ár og líkar afskaplega vel. Nýja húsið er mjög glæsilegt og öll aðstaða starfsfólks er til fyrirmyndar. Matsalurinn er bjartur og fallegur og útsýnið er magnað, sem er stórt atriði. Það hefur meira að segja komið fyrir að erlendir ferðamenn sem eru að skoða hafnarsvæðið dragi þá ályktun að þetta sé háklassa veitingastaður, sem okkur finnst bara skemmtilegt og viss viðurkenning,“ segir Fanney.

„Pabbi og mamma eru mikið fyrir að prófa sig áfram í alls konar fiskréttum og þessi uppskrift er einmitt frá þeim. Upphaflega voru þau með skötusel en þorskhnakkar eru ekkert síðri og auk þess er mun auðveldara að verða sér úti um góða þorskhnakka allan ársins hring. Siggi yfirverkstjóri spyr okkur reglulega hvort ekki fari að styttast í þennan rétt. Hann er greinilega hrifinn, enda með vel þjálfaða bragðlauka þegar fiskur er annars vegar. Þessi réttur hefur sannarlega slegið í gegn hjá þorra starfsfólksins og það er auðvitað frábært og skemmtilegt.“

Yfirverkstjórinn fær ósk sína uppfyllta von bráðar

„Við vorum síðast með þennan rétt þegar um fimmtíu konur í sjávarútvegi skoðuðu húsið og þær rómuðu réttinn, rétt eins og starfsfólkið gerir. Það er greinilega eitthvað við þennan rétt sem gerir hann svona góðan og ég er ekki frá því að Siggi fái ósk sína uppfyllta á næstu dögum.“

Fer ekki nákvæmlega eftir uppskriftum

„Nei, ég fer sjaldnast nákvæmlega eftir uppskriftum, heldur smakka mig áfram, rétt eins og mamma og pabbi gera yfirleitt. Þegar ég er spurð um einhverja uppskrift man ég hana sjaldnast, einfaldlega vegna þess að ég nota gjarnan það sem til er í eldhúsinu en grunnurinn er samt sem áður alltaf gott og ferskt hráefni, hérna er sannarlega enginn skortur á því,“ segir Fanney Davíðsdóttir.

Skötuselur/þorskhnakkar a la Davíð og Vilborg 

Hérna er svo uppskriftin að fiskréttinum góða, sem slegið hefur í gegn hjá starfsfólki fiskvinnsluhúss Samherja á Dalvík.

Sósu-jukk:

1 gul paprika söxuð – smátt

½ laukur saxaður – smátt

ca 6 meðalstórir sveppir – saxaðir smátt.

Þetta er steikt í olíu og smá smjöri (smjörva) á pönnu.

Kryddað með slatta af karrí og blönduðum piparkornum og salti. (Smakka vel)

1 rjómaostur með sólþurrkuðum tómötum settur saman við grænmetið ásamt

1 lítil dós kókosmjólk og

¼ rjómi

1 msk kókosmjöl

Sósan er þykkt svolítið með ljósum sósujafnara þannig að þetta verði líkara leðju en sósu.

Smakka vel og e.t.v. krydda meira.

Sósu-jukkinu er hellt í eldfast fat.

Fiskurinn:

Ca. 800 gr. Þorskur/skötuselur skorinn í ca 1.5 cm sneiðar.

Velt upp úr eggi og mjólk og síðan blöndu af brauðraspi og kókosmjöli (jöfn hlutföll) + salt.

Steikt í olíu á pönnu í stutta stund ca 1-2 mín á hvorri hlið.

Skötuselnum/þorskinum er næst raðað þétt ofan á jukkið.

Í lokin er sósan sett með teskeið smá af Mango Chutnay ofan á hvern fiskbita.

Sett inn í 170 gr heitan bakaraofn í ca 8-12 mín.

ATH: Hægt er að gera þennan rétt með einhverra klukkutíma fyrirvara og eiga bara eftir að setja hann í ofninn og þá kannski aðeins lengur ef hann er alveg kaldur. Passa samt vel að ofelda ekki skötuselinn. Ef notaður er þorskur er fiskurinn ekki eins viðkvæmur fyrir ofeldun.

UMMÆLI

Sambíó