Fjarnemar við HA búa áfram í heimabyggð eftir útskrift

Mynd: unak.is

Mynd: unak.is

Niðurstaða rannsóknar sem unnin var af Þóroddi Bjarnasyni, Inga Rúnari Eðvarðssyni, Ingólfi Arnarsyni, Skúla Skúlasyni og Kolbrúnu Ósk Baldursdóttur segir að þrír af hverjum fjórum fjarnemum við Háskólann á Akureyri búa áfram í heimabyggð fimm árum eftir brautskráningu. Rannsóknin birtist í Tímariti um uppeldi og menntun og ber heitið „Svæðisbundin áhrif íslenskra háskóla“.

„Þessar niðurstöður eru í samræmi við tilfinningu okkar hér við HA en þetta er í fyrsta sinn sem sýnt hefur verið fram á sterk tengsl fjarnáms og búsetu í heimabyggð með opinberum gögnum um búsetu fyrir nám,“ segir Þóroddur Bjarnason, prófessor við HA og einn höfunda greinarinnar í samtali við heimasíðu Háskólans.

Rannsóknin sýnir ennfremur fram á að mikill munur er á menntunarstigi þjóðarinnar eftir landshlutum. En fleiri ljúka háskólaprófi af íbúum höfuðborgarsvæðisins á aldrinum 25-64 ára en í öðrum landshlutum. Þessi munur skýrist að hluta af takmörkuðu framboði starfa sem krefjast háskólamenntunar en að hluta af skorti á háskólafólki til starfa.

Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri segir mikilvægt fyrir Háskólann að fá þessar tölur á hreint. „Nú hefur verið sýnt fram á sterk tengsl milli heimabyggða og nemenda sem stunda sitt nám í fjarnámi. Við munum því efla námsformið sem hefur þróast úr því að vera fjarnám yfir í það að vera sveigjanlegt nám. Það þýðir að engu skiptir hvort þú sért á Akureyri eða annars staðar, allir njóta sömu kennslu,“ segir Eyjólfur.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó