Fjölskylduhátíð á Hjalteyri um verslunarmannahelginaMynd: Northiceland.is

Fjölskylduhátíð á Hjalteyri um verslunarmannahelgina

Nú styttist í verslunarmannahelgi og líkt og á árum áður fylgja því hátíðarhöld víða um land.

Nóg verður um að vera á Hjalteyri eins og annars staðar, en laugardaginn 5. ágúst verður þar haldin fjölskylduhátíð.

Meðal þess sem verður boðið upp á er barnaskemmtun, s.s. hoppukastali, súmóglíma, karmelluflug og kindlaganga. Listasmiðjur verða opnar í Verksmiðjunni og skemmtileg stemning í verbúðum við bryggjuna. Um kvöldið verður grill og trúbador við veitingastaðinn Eyri og síðan verður kvöldinu slúttað með glæsilegri flugeldasýningu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar.

Frekari upplýsingar um hátíðina er að finna á Facebook viðburði hátíðarinnar.

UMMÆLI