Fjórar úr KA/Þór í landsliðshópnum – Aldís Ásta nýliði í hópnum

Fjórar úr KA/Þór í landsliðshópnum – Aldís Ásta nýliði í hópnum

KA/Þór á alls fjóra fulltrúa í A-landsliði Íslands sem leikur í undankeppni EM 2022 á næstunni sem og tvo fulltrúa í B-landsliðinu sem er að fara aftur af stað. Þetta kemur fram á vef KA.

„Þetta er heldur betur frábær viðurkenning á okkar góða starfi en KA/Þór er eins og flestir vita ríkjandi Íslandsmeistarar,“ segir í tilkynningu KA.

Aldís Ásta Heimisdóttir er nýliði í íslenska landsliðshópnum en ásamt henni munu þær Ásdís Guðmundsdóttir, Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Unnur Ómarsdóttir úr KA/Þór taka þátt í komandi leikjum hjá landsliðini.

Þær eru allar í A-landsliðinu sem tekur þátt í undankeppni EM sem hefst í október og þá er æfingamót í Tékklandi í nóvember þar sem liðið leikur gegn Tékklandi, Sviss og Noregi. 

Rakel Sara Elvarsdóttir og Sunna Guðrún Pétursdóttir voru þá valdar í B-landsliðið sem mun æfa saman í október og fara svo samhliða A-landsliðinu á æfingamótið í Tékklandi í nóvember.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó