Flugvél missti afl rétt sunnan við Akureyri

Mynd: Isavia.is

Um klukkan hálf eitt í dag var tilkynnt um að lítil flugvél hefði misst afl á flugi rétt sunnan við Akureyri og um borð væru tveir menn. Skömmu síðar var tilkynnt að flugvélin væri lent en hún hefði þurft að lenda á Eyjafjarðarbraut vestari, rétt sunnan við Hrafnagil. Þetta segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi Eystra.

Flugkennari og flugnemi voru um borð og sluppu þeir ómeiddir. Ekki er talið að flugvélin sé mikið skemmd. Lögreglan á Norðurlandi eystra er á vettvangi og einnig er von á aðilum frá rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar að svo stöddu.

Sambíó

UMMÆLI