Framboðslisti Pírata á Akureyri klár

Framboðslisti Pírata á Akureyri klár

Píratar á Akureyri hafa skilað framboðslista sínum. Hrafndís Bára Einarsdóttir leikari og viðburðastjóri hlaut kjör sem oddviti listans í prófkjöri Pírata sem lauk í mars mánuði. Annað sæti skipar Karl Vinther hönnuður, og þriðja sæti skipar Erna Sigrún Hallgrímsdóttir en hún starfar sem liðveitandi samhliða námi. Heiðurssætið skipar Einar Brynjólfsson sem var oddviti kjördæmisins í síðastliðnum alþingiskosningum.

„Framboðið hyggst einbeita sér að frekara gagnsæi í stjórnsýslunni og auknu íbúalýðræði svo tryggja megi að ákvarðanir séu teknar í sátt við samfélagið. Bæta skal þjónustu við börn og eldra fólk og auka almennt jafnræði í samfélaginu. Huga þarf betur að jaðarhópum og gera Akureyri að stað þar sem allur mannauður er metinn að verðleikum. Hópurinn mun birta stefnuskrá sína á næstu vikum,“ segir í tilkynningu.

Listinn í heild sinni:
Hrafndís Bára Einarsdóttir, Leikkona og Viðburðastýra
Karl Halldór Vinther Reynisson, Hönnuður
Erna Sigrún Hallgrímsdóttir, Öryrki/liðveitandi/nemi
Embla Björk Hróadóttir, Rafeindavirki
Narfi Storm Sólrúnar, Nemi
Lína Björg Sigurgísladóttir, Starfsmaður í verslun
Halldór Arason, Kennari
Þórkatla Eggerz Tinnudóttir, Barþjónn
Reynir Karlsson, Rafvirkjameistari
Sævar Þór Halldórsson, Náttúrulandfræðingur
Einar A. Brynjólfsson, Menntaskólakennari

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó