Framkvæmdir hafnar á KA svæðinuMynd: KA.is

Framkvæmdir hafnar á KA svæðinu

Í morgun hófust framkvæmdir við endurbætta aðstöðu til knattspyrnuiðkunar á heimasvæði Knattspyrnufélags Akureyrar. Akureyrarbær sér um og heldur utan um framkvæmdina.

KA fólk hefur beðið spennt eftir deginum í dag. Á fundi Umhverfis- og mannvirkjaráð í desember 2021 var lagt fram minnisblað varðandi útboð framkvæmda við gervigrasvelli á félagssvæði KA. Í lok janúar voru tilboð opnuð og bárust þá tvö tilboð. Gekk Akureyrarbær til samninga við Finn ehf. Þetta kemur fram á vef KA í dag.

Fyrsta skrefið í framkvæmdum er jarðvegsvinna þangað sem færa á núverandi gervigras. Það verður einfaldlega dregið yfir og mun nýtast í svipaðri mynd og í dag, en þó verða engin flóðljós sett upp við það.

Nýtt gervigras verður svo lagt á svæðið þar sem núverandi gervigras er. Vökvunarkerfi verður komið upp og færanleg stúka sett upp við völlinn. KA mun spila heimaleiki sína þar í sumar í Bestu deild karla um leið og völlurinn er tilbúinn.

Umhverfis- og mannvirkjaráð gerði samning við Metatron ehf. um kaup á gervigrasinu, LigaTurf RS Pro II CP 240 18/4. Áætlað er að grasið og stúkan komi til landsins í lok apríl en KA annast leigu á henni alfarið.

„KA fagnar framkvæmdinni og ljóst er að framkvæmdin nýtist ekki aðeins KA, heldur öllum þeim liðum sem æfa og keppa á félagssvæði KA. Þau eru fjölmörg en ýmis lið æfa í hverri viku á gervigrasvelli KA,“ segir í tilkynningu á vef KA.

Sambíó

UMMÆLI