Origo Akureyri

Framkvæmdir hefjast senn við félagsaðstöðu og stúku á KA-svæði

Framkvæmdir hefjast senn við félagsaðstöðu og stúku á KA-svæði

Miklar framkvæmdir eru á döfinni á íþróttasvæði KA. Byrjað var á nýjum keppnisvelli á síðasta ári og nú stendur til að ráðast í byggingu stúku og félagsaðstöðu. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar í dag.

Á þessu ári hefur verið unnið að jarðvinnu og lögnum á keppnisvelli, uppsetningu ljósamastra fyrir flóðlýsingu auk jarðvegsskipta fyrir fyrirhugaða félagsaðstöðu og stúku. Ekki tókst að ljúka lagningu gervigrassins síðasta sumar og því var ákveðið að fresta því til næsta vors 2024. Þessa dagana er verið að koma fyrir undirstöðum fyrir girðingu umhverfis íþróttasvæðið, meðfram stígum frá Lundaskóla, Hrísalundi og Þingvallastræti.

Vinnu við hönnun á félagsaðstöðu og stúku er að ljúka og reiknað er með því að framkvæmdir við þær verði boðnar út í byrjun febrúar á næsta ári. Gert er ráð fyrir því að þeim ljúki innan fjögurra næstu ára.

Ítarlegri upplýsingar og samningur um framkvæmdina.

Mynd: Tölvuteikning frá Kollgátu arkitektúr. Fleiri myndir má finna á vef Akureyrarbæjar.

UMMÆLI

Sambíó