Framkvæmdir í göngugötunni

Ingibjörg Ólöf Isaksen skrifar:

Akureyrarbær hefur í samráði við Miðbæjarsamtökin gert átak í fegrun miðbæjarins í sumar og á næstunni verður unnið enn frekar að því að gera umhverfið aðlaðandi fyrir gesti og gangandi.

Eins og glöggir íbúar hafa tekið eftir hófust framkvæmdir við fegrun þess hluta miðbæjarins sem við köllum gjarnan göngugötuna í byrjun sumars. Þá voru gróðurker máluð og í þau sett tré og runnar ásamt sumarblómunum. Nýjum bekkjum og ruslatunnum var jafnframt komið fyrir en sá búnaður verður hluti af nýju dvalarsvæðunum.

Vinna er nú hafin við næsta áfanga og eru framkvæmdir þegar hafnar við fyrsta dvalarsvæðið í suðurenda götunnar. Alls verða sex ný dvalarsvæði staðsett á götunni með hlöðnum grágrýtisveggjum, hjólastöndum, runnum og götutrjám. Til stendur m.a. að skipta út núverandi ljósastaurum fyrir nýja og hagkvæmari LED staura. Þeir ljósastaurar sem settir verða upp á næstunni eru talsvert frábrugðnir núverandi staurum. Fyrir utan lægri rekstrarkostnað þá verður lýsingin frá þeim markvissari og mun varpa spennandi skuggamynstrum yfir götuna þegar húmar að.

Til þess að auðvelda stjórnun umferðar í götunni er búið er að koma fyrir rafstýrðri umferðarlokun í tengslum við ákvörðun um lokun götunnar yfir sumartímann. Framkvæmd sem væntanlega mun reynast vel á næstu árum.

Bæjarbúar og gestir mega gera ráð fyrir að sjá verktaka að störfum nú í október og líklegt er að það þurfi að loka götunni á einhverjum tímapunktum meðan á framkvæmdum stendur. Því verður haldið í algjöru lágmarki svo starfsemi og umferð akandi og gangandi vegfarenda við götuna raskist sem minnst.

Miðbærinn er sameign okkar allra og markmiðið með framkvæmdunum í göngugötunni er að fegra ásýnd hans ásamt því að auka skjól og möguleika íbúa og gesta til að staldra við og njóta þess sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó