Prenthaus

Framkvæmdir á nýju bátaskýli hefjast á árinu

Siglingaklúbburinn Nökkvi birti teikningar af nýju byggingunni á Facebook síðu sinni.

Siglingaklúbburinn Nökkvi birti teikningar af nýja bátaskýlinu á Facebook síðu sinni.

Á þessu ári hefjast framkvæmdir á nýju bátaskýli við félagssvæði Siglingaklúbbsins Nökkva á Akureyri. Áætlað er að veita 90 milljónir í verkefnið næstu tvö árin.

Áætlað er hluti skýlisins verði tekinn í notkun vorið 2018. Hönnuðir að skýlinu eru verkfræðistofan AVH og Fanney Hauksdóttir arkitekt.

Rúnar Þór Björnsson, formaður Nökkva, segir þetta vera ánægjuleg tíðindi í viðtali í nýjasta tölublaði Vikudags en lengi hafi staðið til að fara í uppbyggingu á svæðinu.

15326324_748499301970864_6822926194643839656_n

15241356_748499358637525_5249198674125654982_n

 

UMMÆLI