Framtíð Körfuboltans hjá Þór tryggð

Framtíð Körfuboltans hjá Þór tryggð

Framtíð körfuboltans hjá Þór hefur verið tryggð í bili og liðið mun taka þátt í Dominos deild karla í vetur. Þetta kemur fram á vef Þórs.

Eftir fréttir þess efnis að til stæði að draga karlalið Þórs úr keppni í Dominos deild karla í körfubolta sökum þess hve fáar hendur komi að starfinu var boðað til samstöðufundar í Hamri þar sem framtíð körfuboltans hjá Þór var rædd.

Á fimmta tug áhugafólks mætti á fundinn og fimm einstaklingar buðu sig fram til stjórnarsetu ásamt þeim sem þegar voru í stjórn. Auk þess bauð fjöldi stuðningsmanna sig fram í hin ýmsu fjáröflunarverkefni.

Á vef Þórs segir að þrátt fyrir að margar hendur hafi bæst í bakvarðarsveit deildarinnar sé enn pláss fyrir áhugasamt fólk sem vill leggja lið.

Áhugasamir sem vilja vera með geta haft samband með því að senda tölvupóst á karfan.stjorn[at]thorsport.is eða framkvæmdastjóra Þórs, Reimar Helgason reimar[at]thorsport.is.

UMMÆLI