Frístundarstyrkur hefur þrefaldast frá árinu 2014

Frá árinu 2006 hefur Akureyrarbær veitt styrk til allra barna og unglinga á Akureyri til niðurgreiðslu þátttökugjalda hjá íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum á Akureyri. Styrkurinn tekur gildi árið sem barnið verður 6 ára og fellur úr gildi árið sem unglingurinn verður 18 ára.

Frístundaráð Akureyrar og bæjarstjórn samþykktu hækkun á frístundastyrk til niðurgreiðslu á æfinga- og þáttökugjöldum barna og unglinga á Akureyri í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018. Styrkurinn hækkar úr 20.000 kr. í 30.000 kr. frá og með 1. janúar 2018.

Styrkurinn gildir fyrir börn á aldrinum 6-17 ára. Frístundastyrkurinn hefur nú þrefaldast frá árinu 2014.

Til að nota frístundastyrkinn skal fara inn á heimasíðu þess íþrótta-, tómstunda- og/eða æskulýðsfélags þar sem skrá á barn. Þar er hlekkur inn á skráningarsíðu þar sem foreldrar skrá iðkendur. Í lok skráningar- og greiðsluferlisins geta foreldrar valið um að nota frístundastyrkinn frá Akureyrarbæ.

Íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélög(in) veita aðstoð og upplýsingar um skráningu, greiðslu og notkun frístundastyrks hjá hverju félagi fyrir sig.

UMMÆLI