Nemendur í grunn- og framhaldsskólum bæjarins munu fá frítt í Hlíðarfjall og Sundlaug Akureyrar í vetrarfríi grunnskóla á Akureyri.
Fimmtudaginn 15. febrúar geta grunn- og framhaldsskólanemar farið í skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli án endurgjalds. Opið verður frá 10-19.
Föstudaginn 16. febrúar geta þau svo nýtt sér Sundlaug Akureyrar að kostnaðarlausu en opið er frá 06:45 til 21:00.
Verkefnið er hluti af Heilsueflandi samfélagi á Akureyri.
UMMÆLI