Prenthaus

Fullorðin á svið Þjóðleikhússins

Fullorðin á svið Þjóðleikhússins


Grínsýningin Fullorðin, sem hefur slegið rækilega í gegn hjá Leikfélagi Akureyrar, fer á svið Þjóðleikhússins á næsta ári.  Fullorðin er sprenghlægilegur gamanleikur um það skelfilega hlutskipti okkar allra að verða fullorðin og misheppnaðar tilraunir okkar til að sannfæra aðra um að við séum það.

Leikarar eru Vilhjálmur B Bragason, Birna Pétursdóttir og Árni Beinteinn en leikstjórar Marta Nordal og Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir. 

Sýningar eru hafnar að nýju í Hofi. Miðasala er í fullum gangi á mak.is. Sýningar hjá Þjóðleikhúsinu hefjast í mars 2022.

Næstu sýningar í Hofi eru:

27 .ágúst kl. 21

09 .september kl. 20

10 .september kl. 21


UMMÆLI

Sambíó