Origo Akureyri

Fundur um umferð í göngugötunni

Göngugatan á Akureyri

Göngugatan á Akureyri

Í næstu viku verður opinn fundur um göngugötuna á Akureyri. Síðastliðið vor voru samþykktar verlagsreglur sem kveða á um hvenær hluti Hafnarstrætis, sem kallast göngugatan, á einungis að vera fyrir gangandi fólk og var þeim fylgt eftir í júlí og ágúst.

Reglurnar eru nú í endurskoðun og vegna þess verður boðað til opins umræðufundar 24. nóvember kl.17 í bæjarstjórnarsalnum í Ráðhúsi Akureyrar.

Opinn fundur um göngugötuna í næstu viku. Hvað finnst þér um lokun fyrir bílaumferð yfir sumarmánuðina? Hér er tækifærið til að láta skoðun sína í ljós, með eða á móti.

Reglurnar, könnun á viðhorfi íbúa og skýrsla um áhrif lokana, eru aðgengilegar á heimasíðu skipulagsdeildar Akureyrar hér.

Hægt er að senda inn athugasemdir við verklagsreglurnar til 8. desember nk. og skal þeim skilað skriflega til skipulagsdeildar í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, eða á netfangið: skipulagsdeild@akureyri.is.

Sambíó

UMMÆLI